Tíbrá

Tónleikaröð Salarins

TÍBRÁ, TÓNLEIKARÖÐ SALARINS

hefur verið burðarásinn í starfsemi Salarins frá upphafi. TÍBRÁ er fjölskrúðug og vönduð tónleikaröð, þar sem áheyrendur geta gengið að gæðunum vísum. Frá opnun Salarins í janúar 1999 hafa verið haldnir yfir þrjú hundruð TÍBRÁR tónleikar og skipta flytjendur fleiri hundruðum. Tónleikahald á vegum Kópavogs á sér raunar lengri sögu, en það hófst með markvissum hætti árið 1993. Fram til ársins 1999, eða þar til Salurinn var tekinn í notkun, voru árlega haldnir að meðaltali fimmtán slíkir tónleikar á vegum bæjarins. Opnunartónleikar í TÍBRÁ eru á afmælisdegi Sigfúsar Halldórssonar tónskálds og heiðursborgara Kópavogs eða í kringum hann, 7. september og teygir tónleikaröðin sig til 11. maí, sem er afmælisdagur bæjarins.

MIÐASALA

á alla tónleika í TÍBRÁ hefst ár hvert í miðasölu Salarins í lok ágúst, og netsala á Salarvefnum www.salurinn.is viku seinna. Tónleikagestir geta keypt miða á alla tónleika Salarins beint af netinu og þannig tryggt sér auðveldan og öruggan aðgang að hinum ýmsu tónleikum. Það er fyrirtækið Miði.is ehf sem hefur þróað bókunarkerfið.
ATH! Ekki er hægt að kaupa miða með afslætti á netinu!

MIÐAVERÐ Á TÍBRÁRTÓNLEIKA 2010 - 2011

Tónleikar í TÍBRÁ eru 8 talsins á þessu starfsári og er miðaverð á tónleikana 3.500 kr. 

Námsmenn, öryrkjar og 67 ára og eldri greiða 2.900 kr. Sérstakur hópafsláttur er í boði fyrir 15 gesti eða fleiri.

50 % AFSLÁTTUR Á TÍBRÁRTÓNLEIKA!
Ef þú kaupir miða á alla tónleikaröðina færðu miðann á hálfvirði. Þetta þýðir að miðar á átta tónleika kosta 14.000 kr. Tilboðið gildir til 12. september n.k.

MIÐASALAN ER OPIN

Virka daga kl. 14 - 18 og klukkustund fyrir tónleika.
Sími: 5 700 400
Netsala: www.salurinn.is